Aðalvalmynd

Auglýsing

Tenglar

Íbúðin leigð út og væntanlega seld;)Magnús, Rakel og Aron Elí

Þetta var skemmtilegt projekt.... Bæbæ

13. Ágúst. Erum flutt til Íslands og íbúðin stendur tóm.Magnús, Rakel og Aron Elí


Erum flutt til Íslands þannig það er bara hægt að ná í okkur gegnum e-mail og 1 símanúmer eins og staðan er í dag. Sjá hægri dálki;)

Íbúðin stendur tóm og hrein. Ekki verður erfitt að fá að skoða því það eru lyklar geymdir hjá nágrannanum.

Ef áhugi er á að leigja íbúðina tímabundið er það jafnvel möguleiki, þangað til íbúðin selst. En þá yrði bara samið um eitthvern ákv. afhendingartíma, svo það skapist ekki nein óþægindi fyrir neinn.
Leiguverð yrði á kostnaðarverði, sem er ca. 8000.-

26. Júlí Það er komið verð á íbúðinaMagnús, Rakel og Aron Elí

Eignarlýsing neðst niðri

Jæja það eru tveir fasteignarsalar búnir að koma og meta íbúðina, þeir voru nokkuð sammála enda um alveg snilldaríbúð að ræða;)

Ásett verð á íbúðinni er 1.950.000.- dk. krónur.

- Fasteignamat (Ejendomsværdi) á íbúðinni er; 1.650.000
- Lóðamat (Grundværdi) er; 227.700.-

- Fasteignagjöld á ári; 4223,3 kr dk.

- Mánaðargreiðsla í húsfélag; 1789.- kr dk.  Þar inní er vatn, hiti og allt sem tengist húsfélgasrekstri (sjá niðri í eignarlýsingu).

- Ársnot af rafmagni hjá okkur frá 5. Maí 2006 til 30. apríl 2007 var; 4.510.- kr dk. (og við erum týpiskir ísl. þar sem ljósa, sjónvarps notkun er ekki spöruð.... þannig þessi upphæð er létt hægt að ná niður með réttri notkun...


Ef það eru eitthverjar fleiri uppl. sem ég get sett inn endilega skrifið inn komment. Takk.
Látið heyra í ykkur, símanr. í hægri dálk.

Venligst Hilsen
Rakel, Magnús og Aron Elí

21 JúlíMagnús, Rakel og Aron Elí

Eignarlýsing fyrir neðan.

svar við spurningu í gestabók;)
Nei við vorum bara að setja íbúðina á sölu, hún er ekki seld og enginn búinn að skoða. Endilega hafið samband.

Þetta er alveg tilvalin íbúð fyrir bæði fjölskyldu í leit að sumarleyfisíbúð í köben, sem fjárfesting til útleigu, par eða  par með eitt til tvö börn. 
Af 8 íbúðum í eigninni eru 3 barnafjölskyldur og það er mikið leikið og gaman útí garði. 6 börn eru á aldrinum 4 - 11 ára.   

Nýjustu fréttir;)
Það kemur fasteignasali á mánudaginn til að verðmeta íbúðina, þannig fast verð á íbúðinni verður komið á miðvikudaginn 24. Júlí ásamt frekari uppl um hússjóð, ársgjald gas, rafmagn ofl...

p.s
ÞAÐ ER KOMIРFULLT AF MYNDUM INN
 

ÍBÚÐ Í KAUPMANNAHÖFN TIL SÖLUMagnús, Rakel og Aron Elí


Íbúðin er 3ja herbergja 67 fm2. Staðsett í hverfi Emdrup NV København. Í rótgrónnu og rólegu einbýlishúsahverfi. 

Er í litlu tveggja hæða fjölbýl, 4 íbúðir í stigagangi á og 2 stigagangar.
Vel hirtur sameginlegur garður með borðum, bekkjum og sandkassa.
Gengið er inn stigaganginn og upp á 1 sal(2hæð) til vinstri þar blasir við þessi fína hurð;) gengið er inn, smá anddyri með fataskápum, á vinstri hönd er baðherbergi með nýju klósetti, setkari og sturtu. Baðherbergi er talið stórt á mælikvarða kaupmannahafnar. Eldhús er fínt, með góðu skápaplássi, ný gaseldavél frá gorenje, minni típan af uppþvottavél og góður ísskápur með frystiskáp.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft og innbyggðar bókahillur bak við hurð (mjög góð nýting á plássi). Stofan er rúmgóð með geggjuðu útsýni að utterslev mose. Innaf stofu er fínt herbergi með góðum innbyggðum skáp.

Íbúðin er öll nýspörsluð og máluð hvít. Ársgamalt ask parket á forstofu, stofu og herbergjum, eldhús með kork og á baðherbergi er málað steingólf og málaðar flísar upp hálfan vegg.

Í kjallara er sameginlegt þvottaherbergi með nýlegri Ariston þvottavél sem fylgir íbúðinni. Allir með sínar vélar. Sameginlegt stórt þurrkherbergi. Sérgeymsla og tvær stórar sameginlegar geymslur. Önnur fyrir stórt rusl og hin eru hugmyndir að gera leikherbergi fyrir börnin. Nýbúið að skipta út öllum gluggum í kjallara. Snyrtilegur og vel með farinn kjallari.
Verið er að vinna í að mála stigaganga sem verður mikil breyting þegar búið er.
Þjónusta er keypt til að sjá um sameign sem inniheldur að; sleginn er garðurinn, stigagangar þvegnir, tré klippt ofl. 
Nágrannar eru óaðfinnanlegir og góður rekstur er á húsfélagi. 
Stendur til að gera svalir út frá stofu, sem mun ekki bara fá íbúðina til að rjúka upp í verði, heldur stækka stofu og vera alveg geggjuð fjárfesting. Sólin kæmi kl. ca. 14-15 á svalirnar og njóta gæti sólseturs með rauðvínsglas frá svölunum og með útsýni yfir mosen. 

Praktískar upplýsingar

Heimilisfangið er;
Rørmosevej 31, 1tv
2400 København
Danmark

Frekari uppl. eða áhuga að skoða
endilega hafðu samband;

e-mail;
rakel_d@yahoo.com

Sími Maggi og Rakel; 00354-6980075